Íslandsmót golfklúbba 2026 — 1. deild karla
Íslandsmót golfklúbba 2026
Mótinu er lokið — úrslit eru endanleg og skráning er læst.

Hjálp

Hvað er hægt að gera — fyrir liðsstjóra, mótstjórn og áhorfendur.

Hver getur hvað?

Þrjú hlutverk. Áhorfendur þurfa enga innskráningu; liðsstjórar og mótstjórn skrá sig inn með netfangi sem mótstjórn hefur boðið.

Áhorfendur
Engin innskráning
  • Skoða stöðu, leiki og úrslitakeppni
  • Fylgjast með leikmanni og fá push-tilkynningar
Liðsstjóri
Innskráður · sitt lið
  • Skrá leikmenn í liðið sitt
  • Skrá liðsskipan fyrir hverja umferð
  • Skrá og staðfesta úrslit jafnóðum
  • Sjá rástíma og leiki liðsins
Mótstjórn
Innskráður · allt mótið
  • Lið, leikmenn, riðlar og rástímar
  • Bjóða liðsstjórum og mótstjórn
  • Setja upp úrslitakeppni
  • Staðfesta úrslit / leysa ágreining

1. Skrá liðsskipan fyrir næstu umferð

Liðsstjóri skráir hverjir leika í fjórleik og tvímenningum fyrir hvern leik.

1
Innskráning
Smelltu Innskráning efst hægra megin og skráðu þig inn með netfangi liðsstjóra.
2
Opnaðu Admin
Eftir innskráningu opnast Admin síðan með yfirlit yfir liðið þitt og leikina.
3
Veldu leik
Smelltu á Mínir leikir og veldu leik sem þú vilt skrá fyrir. Þú getur skráð drög langt fram í tímann.
4
Smelltu á „Liðsskipan“
Á leiksíðu er takki Liðsskipan sem opnar formið.
5
Veldu 7 leikmenn (2 fjórmenningar + 3 tvímenningar)
Skv. 12. gr. í reglugerð:
  • Leikmenn A og B — Fjórmenningur 1
  • Leikmenn C og D — Fjórmenningur 2
  • Leikmaður E — Tvímenningur 1
  • Leikmaður F — Tvímenningur 2
  • Leikmaður G — Tvímenningur 3

Skilafrestur skv. 13. gr.: 30 mín. eftir lok leiks í umferðinni á undan (riðlakeppni og 5.–8. sæti); í útsláttarkeppni (1.–4. sæti) þurfa báðir leikir í umferðinni á undan að vera kláraðir. Að öðru leyti læsist skráning 120 mín fyrir rástíma (sjá skref 7).

6
Vista drög eða staðfesta
  • Vista drög — vistar uppstillingu sem mótherjinn sér ekki. Notaðu þetta til að halda vinnu áfram síðar.
  • Staðfesta liðsskipan — tilkynnir formlega. Mótherjinn sér liðsskipan þína EFTIR að hann staðfestir sína líka.
7
Frestur: 120 mín fyrir rástíma — svo læst
Þú mátt breyta og staðfesta liðsskipan þar til 120 mín eru í rástíma; eftir það er hún læst (skv. 5. gr. má ekki breyta eftir að liðsskipan er formlega tilkynnt). Í seinni umferð dagsins — þar sem fyrri umferð klárast skemur en 120 mín í næsta leik — getur mótstjórn opnað skráningu innan gluggans; þá máttu tilkynna alveg fram að rástíma, en það læsist um leið og þú staðfestir. Mótstjórn (league admin) getur alltaf breytt í neyð.

2. Skrá úrslit eftir leik

Hvort lið skráir úrslit, hitt staðfestir.

1
Opnaðu leikinn í Admin
Smelltu á Mínir leikir á Admin síðunni og veldu leikinn.
2
Skráðu úrslit hverrar viðureignar
Fimm viðureignir á hverjum leik (skv. 12. gr.):
  • Fjórmenningur 1
  • Fjórmenningur 2
  • Tvímenningur 1
  • Tvímenningur 2
  • Tvímenningur 3

Smelltu á Sigur hjá viðeigandi liði eða Jafntefli. Fylltu inn skor í formi 3/2 (3 holur upp með 2 eftir).

3
Heildarstig reiknast sjálfkrafa
Hver viðureign gefur 1 stig (0,5 fyrir jafntefli) skv. 12. gr. Heildarstig leiks birtast neðst (t.d. 3–2).
4
Smelltu „Skrá úrslit“
Úrslitin vistast og hitt liðið sér þau á þeirra leiksíðu.
5
Hitt liðið staðfestir
Hinn liðsstjórinn smellir Staðfesta úrslit. Þá fer leikur í Lokið og úrslitin birtast á public síðum.
6
Þarf að breyta?
Smelltu Hreinsa úrslit efst í úrslitakortinu (við hliðina á stöðu-merkinu). Liðsstjóri má hreinsa fyrir staðfestingu — eftir staðfestingu þarf league admin.

4. Skoða stöðu í riðlum

/standings sýnir riðla A og B. Smella á riðil til að sjá ítarlegt yfirlit með öllum 3 umferðum og leikjum riðilsins.

  • Græn lína markar topp 2 sem fara í undanúrslit (efri hluti 1.–4. sæti). Neðri 2 spila um 5.–8. sæti.
  • Stigakerfi skv. 12. gr.: Hver viðureign gefur 1 stig (0,5 fyrir jafntefli). Standings raðast eftir heildarfjölda stiga.
  • Tiebreak: fjöldi unninna viðureigna → innbyrðis leikur → bráðabani (1 fjórmenningur).

5. Úrslitakeppnin

/playoffs sýnir efri hluta (1.–4. sæti) og neðri hluta (5.–8. sæti).

  • Efri hluti (4.–5. umferð): SF1 A1 v B2, SF2 A2 v B1 → sigurvegarar leika um 1. sæti, tap leika um 3. sæti.
  • Neðri hluti (5.–8. sæti): Úrslit 3 v 4 í riðli (úr 3. umferð) flytjast yfir sem carryover. 4. umf: 4A v 3B og 3A v 4B. 5. umf: 4B v 4A og 3B v 3A.
  • Sama leikform alla keppnina — 2 fjórmenningar + 3 tvímenningar.
  • Í útsláttarkeppni (1.–4. sæti) er leikið til úrslita; ef röð er ljós teljast jafnar viðureignir eftir 18 holur helmingaðar.

6. Fylgjast með leikmanni og vista appið á símann

Áhorfendur geta fylgst með einstökum leikmönnum og fengið push-tilkynningar — engin innskráning. Til að fá tilkynningar á iPhone þarf fyrst að vista appið á heimaskjáinn.

1
Finndu leikmanninn og fylgdu honum
Opnaðu Lið og veldu lið (eða farðu á leikmannasíðu) og smelltu á stjörnu-takkann (☆) við nafn leikmannsins.
2
Opnaðu „Fylgi“
Fylgi-síðan sýnir leikmennina sem þú fylgist með og leiki þeirra.
3
Virkjaðu tilkynningar
Á Fylgi-síðunni kveikirðu á tilkynningum og velur hvort þú færð allar skorskráningar eða bara lokatölur.
📲 Vista appið á heimaskjá símans

Þá opnast mótið í fullum skjá eins og app — og á iPhone er þetta nauðsynlegt til að push-tilkynningar virki (Safari sendir ekki tilkynningar nema appið sé á heimaskjá).

iPhone / iPad (Safari)
  1. Opnaðu vefinn í Safari.
  2. Ýttu á Deila-takkann (ferningur með ör sem vísar upp).
  3. Veldu „Bæta á heimaskjá“ (Add to Home Screen).
  4. Ýttu á Bæta við.
Android (Chrome)
  1. Opnaðu vefinn í Chrome.
  2. Ýttu á valmyndina ⋮ efst hægra megin.
  3. Veldu „Setja upp forrit“ eða „Bæta á heimaskjá“.

Opnaðu mótið eftir það af heimaskjá-tákninu — þá heldur það þér skráðum og tilkynningar berast.

7. Reglur og keppnisskilmálar

Lykilatriði úr reglugerð GSÍ — greinar 12, 13 og 14.

Opna reglur (greinar 12–14)

  • 12. gr. Leikjasnið + stigaútreikningur + tiebreak.
  • 13. gr. Skil liðsskipanar (30 mín. frestur).
  • 14. gr. Riðlapörun, 1.–4. sæti og 5.–8. sæti.

9. Algengar spurningar

Stutt svör við því sem oftast er spurt um.

▸Hvernig fæ ég aðgang sem liðsstjóri eða mótstjórn?
Mótstjórn býður þér á netfangið þitt. Þú nýskráir þig með nákvæmlega því netfangi og velur lykilorð — þá færðu rétt hlutverk sjálfkrafa. Það er engin opin sjálfsskráning.
▸Innskráningin virkar ekki eða ég fæ ekki réttindin — hvað geri ég?
Netfangið verður að vera nákvæmlega það sem þér var boðið á. Hafðu samband við mótstjórn til að laga netfangið eða senda boðið aftur.
▸Fær liðsstjóri sjálfkrafa póst þegar honum er boðið?
Nei. Mótstjórn sendir leiðbeiningar handvirkt með takkanum „Senda leiðbeiningar“ á notendasíðunni.
▸Af hverju sé ég ekki liðsskipan mótherjans?
Hún birtist fyrst þegar bæði lið hafa staðfest og innan 2 klst. frá rástíma — svo enginn sjái hana of snemma.
▸Get ég breytt liðsskipan eftir að ég staðfesti?
Þú mátt breyta þar til 120 mín eru í rástíma; eftir það er læst og aðeins mótstjórn getur breytt í neyð. Í seinni umferð dagsins getur mótstjórn opnað skráningu innan 120 mín — þá máttu tilkynna fram að rástíma, en það læsist um leið og þú staðfestir.
▸Get ég skráð leikmann án Golfbox-númers eða netfangs?
Já, hvort tveggja er valfrjálst. Netfang leikmanns (ef sett) sést aðeins liðsstjóra og mótstjórn.
▸Hver getur bætt við eða breytt leikmönnum?
Liðsstjóri skráir leikmenn í sitt eigið lið (innskráður, á Leikmenn liðsins). Mótstjórn getur breytt leikmönnum allra liða.
▸Sjást sími og netfang liðsstjóra öllum?
Nei — á vefnum birtast þau aðeins innskráðum liðsstjórum og mótstjórn. Áhorfendur sjá aðeins nafnið.
▸Hvernig fæ ég tilkynningar um ákveðinn leikmann?
Fylgdu leikmanni (stjörnu-takkinn) og virkjaðu tilkynningar á Fylgi-síðunni. Þú velur hvort þú færð allar skorskráningar eða bara lokatölur. Engin innskráning þarf. Sjá einnig kafla 6.
▸Ég fæ engar tilkynningar á iPhone — af hverju?
Á iPhone/iPad sendir Safari aðeins push-tilkynningar ef vefurinn er vistaður á heimaskjáinn. Sjá „Fylgjast með leikmanni og vista appið á símann“ (kafli 6). Opnaðu appið síðan af heimaskjá-tákninu og virkjaðu tilkynningar á Fylgi-síðunni.
Vantar þig hjálp?

Hafðu samband við mótstjórn ef þú lendir í tæknilegum vandræðum eða hefur spurningar um framkvæmd.